Landmark er framsækinn fasteignasala sem stofnuð var haustið 2010. Starfsmenn okkar hafa allir mikla reynslu af fasteignasölu, fasteignaráðgjöf og úr fasteignaviðskiptum og er samanlagður starfsaldur í fasteignaviðskiptum mældur í áratugum.

Löggiltir fasteignasalar og eigendur eru Magnús Einarsson og Sigurður Samúelsson en þeir hafa báðir áralanga reynslu úr fasteignaviðskiptum.  

Landmark fasteignasala býður uppá fulla gæðaþjónustu. Sölumenn Landmark sjáum söluferlið frá A til Ö. Þar með talið sýna þeir eignina fyrir seljendur.

Kaupendur geta treyst því að fá vandaða ráðgjöf varðandi fjármögnun og hentugt húsnæði fyrir mismunandi þarfir.

Markmið Landmark fasteignasölu er að veita gæðaþjónustu frá því eign er skráð inn þar til nýr eigandi hefur tekið við eigninni og afsal hefur verið gefið út.

Okkar markmið er að vera ein af helstu fasteignasölum á Íslandi. Því markmiði náum við með því að ástunda vönduð og heiðarleg vinnubrögð.

Landmark þýðir kennileiti. Það er okkar markmið að Landmark sé kennileiti á Íslenskum fasteignamarkaði.

 

Þú hringir - við seljum! - Landmark fasteignasala