Iðunnarbrunnur 12, 113 Reykjavík (Grafarholt)
66.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
3 herb.
92 m2
66.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2020
Brunabótamat
48.500.000
Fasteignamat
63.000.000

Landmark fatsteignamiðlun og Monika Hjálmýsdóttir, lögg. fasteignasali kynna: Fallega og vel skipulagða 92,8 fm neðri sérhæð, þar af 23,3 fm bílskúr við Iðunnarbrunn 12 í Úlfarsárdal, Reykjavík. Gengið er inn um sameiginlegan inngang og inn í íbúð og þaðan er einnig innangengt í parketlagðan bílskúr sem nýttur hefur verið sem auka herbergi. Innaf bílskúr er geymsla með salerni, baðinnréttingu, sturtu og þvottaaðstöðu. Innbyggð lýsing víða í lofti. Gólfsíðir gluggar. Góður 37,5 fm sérafnotareitur tilheyrir eigninni í vestur. 

Nánari lýsing
Hol
er með innbyggðum fataskáp og fatahengi, harðparket á gólfi. 
Eldhús og stofa er í sameiginlegu opnu rými. harðparket á gólfi. 
Eldhúsinnrétting er með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, bakarofn og örbylgjuofn í vinnuhæð og ágætis geymslurými. Áfastir skápar á móti innréttingu fylgja. 
Hjónaherbergi er rúmgott með innbyggðum fataskápum, harðparket á gólfi. 
Aukaherbergi er með nokkuð rúmgott með rennihurðum með útgengi út á sérafnotaflöt (ekki opnanlegt fag), harðparket á gólfi. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðinnréttingu, spegli yfir með lýsingu, fallegu frístandandi baðkari, línskáp og handklæðaofni. Auðvelt er að taka baðkar í burtu og breyta í sturtu. 
Bílskúr er með harðparketi á gólfi. Innaf bílskúr er baðherbergi með upphengdu salerni, lítilli baðinnréttingu og sturtuklefa ásamt tengi fyrir þvottavél. 

Íbúðin er 63,2 fm (0101), geymsla, baðherbergi í dag er 6,3 fm (0103) og bílskúr er 23,3 fm (0102), alls  92,8 birt stærð skv. skráningu Þjóðskrá Íslands. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali
í félagi FF / [email protected]/ 823-2800
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
í félagi FF / [email protected] / 823-2600
Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.