Selbrekka 18, 200 Kópavogur
123.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
6 herb.
185 m2
123.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1970
Brunabótamat
82.900.000
Fasteignamat
108.300.000

LANDMARK kynnir:  Fallegt og snyrtilegt 185,3 fm einbýlishús með bílskúr á skemmtilegum stað með útsýni í Kópavogi.  Í húsinu eru fjögur til fimm svefnherbergi.  Sérinngangur í herbergi á jarðhæð með aðgang að salerni og sturtu.  Falleg afgirt verönd í suður með skjólveggjum og snyrtileg lóð.

Forstofa er með flísum og fataskáp.  Lítið fataherbergi þar inn af.
Gestasalerni er við forstofu.
Hol er inn af forstofu með flísum á gólfi. Þaðan er útgengt út á verönd og garð
Stofan og borðstofan eru samliggjandi með parketi á gólfi.  Fallegt útsýni úr borðstofu.
Eldhúsið er flísalagt með eldri snyrtilegri innréttingu og borðkrók.  Fallegt útsýni.
Á herbergjagangi eru þrjú svefnherbergi, en voru áður fjögur.  Parket á gólfum og góður fataskápur í hjónaherbergi.
Baðherbergið er flísalagt með baðkari / sturtu og eldri innréttingu.

Í kjallara / jarðhæð er rúmgott herbergi / geymsla með sérinngangi.  Þar er einnig rými með salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél sem er í sama rými og inntak heita og kalda vatnsins.  Af gangi er innangengt í geymslurými sem er ekki skráð í birtri stærð hússins.  Þaðan er innangengt í bílskúrinn sem er 34 fm og er snyrtilegur.

Lóðin er falleg og gróin með góðum sólpalli með skjólveggjum.  Bílastæði fyrir framan hús fyrir 2 bíla.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected] eða Ingibjörg Agnes Jónsdóttir Lgf í síma 897-6717 eða [email protected]
---------------------------------------------------------

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.