Geislaskarð 2, 221 Hafnarfjörður
69.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
93 m2
69.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2020
Brunabótamat
55.200.000
Fasteignamat
66.200.000

LANDMARK kynnir:  Virkilega falleg og vel skipulögð 3ja herbergja, 93,7 fm endaíbúð á 5. og efstu hæð í nýlegu lyftuhúsi í Skarðshlíðarhverfinu í Hafnarfirði. Frábær staðsetning m.t.t. skóla,  leikskóla, fallegrar náttúru  svo eitthvað sé nefnt.  Parket, skápar, innréttingar og innihurðar frá Parka.

Smelltu hér fyrir söluyfirlit


Forstofa er með fataskáp og parketi á gólfi.
Stofan er í opnu rými með borðstofu og eldhúsi.  Parket er á gólfum og útgengt út á suðvestur svalir með útsýni.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu sem er hvít að hluta og dökk.  Parket á gólfum.
Þvottahús með nýlegri innréttingu er inn af eldhúsi.
Svefnherbergin eru tvö og bæði nokkuð rúmgóð með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu, handklæðaofni og sturtu með glervegg.

Í sameign er sérgeymsla íbúðar, 4,3 fm ásamt hjóla- og vagnageymslu.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
----------------------------------------------------------

 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.