Þingás 45, 110 Reykjavík (Árbær)
129.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
7 herb.
209 m2
129.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1988
Brunabótamat
90.450.000
Fasteignamat
115.850.000

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / [email protected]) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna:

Mjög fallegt og vel viðhaldið raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr með millilofti á eftirsóttum og rólegum stað við Þingás 45 í Árbænum. Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 209,6 fm og skiptist þannig að neðri hæðin er 137,9 fm., risið 48 fm og bílskúrinn 23,7 fm. FIMM SVEFNHERBERGI  - VIRKILEGA GOTT SKIPULAG ÞAR SEM HVER FERMETER NÝTIST VEL - GLÆSILEGT ÚTSÝNI ÚT Á RAUÐAVATN - HELLULAGT PLAN AÐ FRAMAN ÁSAMT TIMBURPALLI EINNIG ER GÓÐUR TIMBURPALLUR BAKATIL. Byggingarár hússins er 1988 og var þakið málað árið 2020. Upphituð innkeyrsla. 

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT OG ALLAR FREKARI UPPLÝSINGAR

Nánari lýsing neðri hæðar: Komið inn í forstofu, fatahengi. Á vinstri hönd frá forstofu er þvottahús, skápur og skolvaskur. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, baðkar með sturtu, neðri skápur, upphengt salerni. Mjög rúmgott miðrými. Þrjú rúmgóð svefnherbergi á neðri hæðinni. Fataskápur í hjónaherbergi og innaf herberginu er snyrting með hvítri innréttingu, sturtu og upphengt salerni. Rúmgóð stofa og borðstofa með flísum á gólfi. Frá stofu er gengið út á timburpall með glæsilegu útsýni í átt að Rauðavatni. Eldhús með innréttingu með miklu skápaplássi sem nær alveg upp í loft. Bílskúrinn er skráður 23,7 fm og er hann með millilofti, sjálfvirkum hurðaopnara, heitu og köldu vatni. Parket og flísar á efri og neðri hæðinni.

Nánari lýsing efri hæðar: Frá miðrými neðri hæðar er gengið upp stiga upp í risið og skiptist rýmið í sjónvarpsherbergi og tvö svefnherbergi. Velux opnanlegir þakgluggar í svefnherbergjum, súðargeymsla í öðru herberginu. Stór þakgluggi í sjónvarpsherberginu sem gefur mjög góða birtu inn í rýmið. 

EIGNIN ER MJÖG VEL STAÐSETT ÞAR SEM STUTT ER Í SKÓLA, LEIKSKÓLA, ÞJÓNUSTU, ÍÞRÓTTASVÆÐI, SUNDLAUG OG FALLEGAR GÖNGULEIÐIR Í ELLIÐARÁRDALNUM, HEIÐMÖRK OG RAUÐAVATN. 

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða [email protected]

Meðmæli fyrri viðskiptavina
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram

Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.