Lautasmári 10, 201 Kópavogur
84.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
132 m2
84.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1997
Brunabótamat
60.120.000
Fasteignamat
80.650.000

LANDMARK fasteignamiðlun og Þórarinn Thorarensen, lögg. fasteignasali (s: 770-0309 / [email protected]​​​​​​​) kynna: 

Fallega og mjög snyrtilega fjögurra herbergja 132,3 m² endaíbúð á 3. hæð í góðu fjölbýlishúsi við í Lautasmára 10 í Kópavogi, þar af er bílskúr 21,7 m2 með sér bílastæði fyrir framan. Sér þvottaherbergi er innan íbúðar. Gluggar í þrjár áttir. Eignin er virkilega vel staðsett miðsvæðis í Smárahverfi Kópavogs, öll helsta þjónusta í göngufæri, skólar, leikskólar, íþróttasvæði og Smáralind auk þess sem stutt er í útivistarsvæðið við Kópavogsdalinn.
 
Eignin skiptist í anddyri, gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu/borðstofu, eldhús, þvottaherbergi, geymslu og bílskúr.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands: Íbúð er 110,6 m2 merkt 010302. Sér geymsla tilheyrir eigninni er 8,8m2 merkt 01 0003, og bílskúr er 21,7m2 merktur 010009.

Sækja söluyfirlit strax

 
Nánari lýsing
Forstofa er með fataskáp, flísar á gólfi. 
Stofa og borðstofa er í björtu og rúmgóðu rými, parket á gólfi. Útgengi á vestursvalir. 
Eldhús er með innréttingu með góðum geymslurýmum, helluborði, gufugleypi, bakarofni í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp. Borðkrókur fremst í eldhús, flísar á gólfi. 
Þvottaherbergi er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vegghengdu borði og skolvaski, flísar á gólfi. 
Svefnherbergi I er rúmgott með fataskáp, parket á gólfi. 
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp parket á gólfi. 
Svefnherbergi III (hjónaherbergi) er rúmgott með stórum fataskáp, parket á gólfi. 
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum, með salerni, baðinnréttingu og speglaskáp, sturtuklefa og  og baðkari. 
Sér geymsla í kjallara, rúmgóð með glugga.
Bílskúr er innangengur af geymslugangi. 
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Þórarinn Thorarensen, lögg. fasteignasali s: 770-0309 / [email protected]​​​​​​​

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.