Ofanleiti 23, 103 Reykjavík (Kringlan/Hvassal)
79.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
125 m2
79.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1985
Brunabótamat
54.900.000
Fasteignamat
78.350.000

LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 4ra - 5 herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli við Ofanleiti 23 í Reykjavík með stakstæðum bílskúr. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Íbúðin er vel skipulögð með tvennum svölum. Búið er að stúka af hluta af stofu og bæta við auka svefnherbergi og því eru fjögur rúmgóð svefnherbergi í eigninni í dag.

Eignin er skráð 125,7 fm hjá HMS en þar af er bílskúr 21,2 fm. Eignin skiptist í stofu, borðstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi og baðherbergi en henni fylgir stakstæður bílskúr.

Smellið hér til að sækja söluyfirlit en annars eru allar frekari upplýsingar veittar í síma 663 2300 eða [email protected].  
 
Nánari lýsing
Forstofa
er fataskáp, plastparket á gólfi.
Stofur, tvær samliggjandi stofur, plastparket á gólfi (eldshús og hluti af stofu á teikningu)
Eldhús með eldri innréttinguu, tengi fyrir uppþvottavél og plastparket á gólfi (þvottahús á teikningu).
Hol / svefnherbergisgangur, plastparket á gólfi og útgengt á svalir.
Hjónaherbergi með fataskáp, dúkur á gólfi.
Barnaherbergi I með fataskáp, plastparket á gólfi.
Barnaherbergi II með fataskáp, plastparket á gólfi.
Barnaherbergi III, plastparket á gólfi og útgengt á svalir (hluti af stofu á teikningu)
Baðherbergi, flísalagt með salerni, innréttingu, baðkari og sturtu, tengi fyrir þvottavél á baðherbergi.
Bílskúr (21,2 fm) með hita, málað gólf og pússaðir veggir en þá á eftir að klæða loftið.

Húsið er nýlega múrviðgert og málað að utan en þakið málað fyrir nokkrum árum.

Allar frekari upplýsingar veiti ég í síma 663 2300 eða gegnum [email protected] en eins má finna umsagnir viðskiptavina minna á www.thorey.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.