Víkurás 3, 110 Reykjavík (Árbær)
64.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
107 m2
64.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1985
Brunabótamat
43.270.000
Fasteignamat
62.050.000

LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 kynna:
Um er að ræða verulega snyrtilega og bjarta þriggja herbergja 107.0 m2 íbúð á annari hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi á þessum vinsæla stað í Selásnum.
Íbúð fylgir stæði í lokaðri bílgeymslu sem er skráð sem bílskúr á eign og er 21.8 fm, húseign klædd að utan og því viðhalds létt.
Sameign er öll mjög snyrtileg og er þvottaherbergi fyrir íbúðir á hverri hæð.
Nýlega er búið að skipta um eldhúsinnréttingu og gólfefni í íbúð.


Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða [email protected]

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Eignin skiptist í:
Forstofu/hol, stofu, borðstofu/alrými, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymsla/þvottaherbergi og stæði í lokaðri bílgeymslu.

Nánari lýsing á eign:
Forstofa/hol með innbyggðum fataskáp.
Stofa og björt og er útgengi á suður-svalir úr stofurými.
Borðstofa er í miðjurými íbúðar og er opin inn í eldhús.
Eldhús er með nýlegri hvítri eldhúsinnréttingu með góðu skápaplássi, eldunareyja skilur af borðstofu og eldhús og er helluborð í eyju, gert er ráð er fyrir uppþvottavél í eldhúsinnréttingu.
Tvö góð svefnherbergi með fataskápum og eru gluggar á tvo vegu í hjónaherbergi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, baðkar með sturtuhengi, innrétting með skápum undir vask.
Geymsla er innan íbúðar.
Sérstæði í lokaðri bílgeymslu.
Sameiginlegt þvottaherbergi er á hæðinni og hjóla/vagnageymsla á jarðhæð.
Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum íbúðar.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.