Engjavegur 28, 400 Ísafjörður
25.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
85 m2
25.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1947
Brunabótamat
28.150.000
Fasteignamat
28.000.000

LANDMARK kynnir: Mjög góð 3ja herbergja, 85,9 fm íbúð með sérinngangi í kjallara í tvíbýlishúsi á Engjavegi.  

*** Smelltu hér fyrir söluyfirlit eignarinnar ***

Forstofa / anddyri er með parketi 
Eldhúsið er með hvítri innréttingu og flísum á gólfi.
Baðherbergið er með flísalagt gólf, sturtu og handklæðaofn.
Stofan er með parketi á gólfi.
Tvö svefnherbergi eru á hæðinni, bæði með parketi á gólfum og fataskápum.

Parket á stofu, gangi og herbergjum endurnýjað árið 2019 og á sama tíma var eldavél endurnýjuð.

Þvottahús er sameiginlegt með efri hæð, innangengt úr íbúð og er nokkuð rúmgott. Sérgeymsla íbúðar er 4,8 fm.

Endurbætur skv seljanda:  Þak var endurnýjað árið 2010 ásamt þakrennum.  Árið 2010 var skipt um alla glugga í húsinu, ný gler og opnanleg fög. Sama ár var dren endurnýjað í kringum húsið. Flísar endurnýjaðar í sturtubotni á neðri hæð árið 2020 og settur upp handklæðaofn.  Einnig var vaskur, vaskskápur og speglaskápur sett upp. Lagnir í sturtubotni á jarðhæð endurnýjaðar árið 2020. Ofnar hafa verið endurnýjaðir að nokkru leyti í húsinu öllu.  Annars vísast í ástandsyfirlýsingu seljanda.

Nánari upplýsingar veita: 
Freyja Rúnarsdóttir Lgf í síma 694-4112, [email protected]

Sigurður Samúelsson Lgf, [email protected]
----------------------------------------------------------------------------------




 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.