Skólatún 18, 840 Laugarvatn
69.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
153 m2
69.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
31.000.000

Landmark fasteignamiðlun og Jens Magnús lgf., [email protected], kynna í einkasölu Skólatún 18, 840 Laugarvatni. Eignin er skv. skráningu 153,8 fm og þar af bílskúr 51,6 fm. Fallegt fjögurra herbergja raðhús með bílskúr í byggingu á þessum vinsæla stað. Eignin skilast fullkláruð á byggingastigi 4, skv. ÍST 51_2021. Virkilega skemmtilega skipulögð eign, þar sem allt rúmast eins og best verður á kosið. Bílskúrinn er mjög rúmgóður með geymslu í endanum.

Bókið skoðun hjá fasteignasala í síma 893-1984 eða [email protected]

Komið er inn í opna forstofu og þar eru 2 svefnherbergi. Úr forstofu er gengið inn í alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Innaf alrýminu er gengið inn í þriðja svefnherbergið, rúmgott baðherbergi og þvottahús. Útgengi er út á baklóð úr stofu. Gólfhiti er í allri íbúðinni.
Innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi. Bílskurinn er skv skráningu 51,6 fm með geymslu í endann.
Búið verður að setja vandað harðparket á öll gólf nema votrými, þar verða flísar. Ekki verður búið að setja gólfefni á bílskúr.
Innréttingar eru frá IKEA 
Innihurðar verða hvítar yfirfelldar.

Nánari skilalýsing er hjá fasteignasala.

Virkilega falleg eign á skemmtilegum stað í þorpinu.

Laugarvatn er ört stækkandi bær með mikla náttúrufegurð. Þorpið stendur við samnefnt vatn. Stutt er í margar af fallegustu náttúruperlum suðurlands. Á Laugarvatni eru leikskóli (þar sem börn komast að 1 árs), grunnskóli og menntaskóli. Ört stækkandi staður þar sem gott er að búa.

Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun:
Jens Magnús Jakobsson lgf. í síma 8931984 eða [email protected]

 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.