Brekkugata 18, 470 Þingeyri
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
6 herb.
208 m2
Tilboð
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1971
Brunabótamat
95.500.000
Fasteignamat
28.600.000

Tilboð óskast !

LANDMARK kynnir: 
Mjög gott 6 herbergja, 208,6 fm einbýlishús á útsýnisstað á Þingeyri.  Glæsilegt útsýni yfir Dýrafjörðinn.  Fjögur svefnherbergi.  

Forstofa er með flísalagt gólf og fataskáp.
Gangur er inn af forstofu með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi með teppi á gólfi og fallegt útsýni er úr stofu út á Dýrafjörðinn.
Gengið er úr borðstofu út í rúmgóðan, flísalagðan sólskála sem er upphitaður. Útgengt út á verönd og garð.
Svefnherbergin eru fjögur á herbergjagangi með parketi á gólfi og stórir skápar eru í hjónaherbergi.
Eldhúsið er með upprunalegri innréttingu og dúk á gólfi. 
Baðherbergi er með dúk á gólfi og sturtuklefa.
Gestasalerni er með flísalagt gólf.
Þvottahús er með flísalagt gólf, opnanlegan glugga og sérinngang.

Í kjallara er geymslurými, lítið salerni og bílskúr.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
---------------------------------------------------------

 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.