Bjarkarholt 9, 270 Mosfellsbær
54.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
54 m2
54.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2020
Brunabótamat
43.310.000
Fasteignamat
48.600.000

LANDMARK kynnir:  Mjög falleg og vel skipulögð 2ja herbergja, 54,2 fm íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi á frábærum stað í Mosfellsbæ, þar sem öll helsta þjónusta er við höndina eins og matvöruverslanir, apótek, veitingastaðir, bakarí svo það helsta sé nefnt.  Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu.  Laus til afhendingar !

Forstofa / anddyri er með fataskáp og parketi á gólfi.
Stofan er björt með gólfsíðum gluggum, parketi á gólfi og þaðan er útgengt út á svalir með fallegu útsýni.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu með gráum tónum og parketi á gólfi.  Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgja.
Svefnherbergið er með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu, handklæðaofni og steyptri sturtu með glervegg.  Tengi fyrir þvottavél á baði.

Stæði í bílageymslu (B30) fylgir eigninni.  Á íbúðinni er harðparket.

Sérgeymsla íbúðar (3,5 fm) er í sameign í kjallara ásamt hjóla- og vagnageymslu.

Upplýsingar veita:
Freyja Rúnarsdóttir Lgf í síma 694-4112,  [email protected]
Sigurður Samúelsson, [email protected]
----------------------------------------------------------

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.