***EIGNIN ER SELD EN ÞÓ MEÐ FYRIRVARA***
LANDMARK fasteignamiðlun kynnir: Björt og falleg 138,2 fm, 4ra til 5 herbergja íbúð á 3. og efstu hæð í litlu fjölbýli í Salahverfinu í Kópavogi. Frábær staðsetning. Aukin lofthæð. Fallegt útsýni.
Fyrir liggur samþykki í húsfélaginu fyrir svalalokun og heitum potti á svölum að sögn seljanda.
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Eldhúsið er með flísum á gólfi og fallegri innréttingu.
Þvottahús er inn af eldhúsi.
Stofan og borðstofan er mjög
rúmgóð, í björtu rými með ljósu parketi. Þaðan er útgengt á stórar
vestursvalir með glæsilegu útsýni.
Svefnherbergin eru þrjú með ljósu parketi á gólfi og fataskápum. Hjónaherbergi rúmgott.
Baðherbergið er flísalagt með baðkari, sturtu og fallegri innréttingu.
Sérgeymsla íbúðar er á jarðhæð ásamt
sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Stigagangur var nýlega teppalagður og málaður. Snyrtileg sameign.
Upplýsingar veitir Ingibjörg Agnes í síma 897-6717 / inga@landmark.is og Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 / ss@landmark.is
------------------------------------------------------------------------