LANDMARK fasteignamiðlun kynnir: Falleg 3ja herbergja, 95,1 fm íbúð á jarðhæð með sérinngangi í fjórbýlishúsi á frábærum stað í Áslandinu í Hafnarfirði. Afgirt verönd út af stofu. Hús klætt viðhaldsléttri klæðningu.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson löggiltur fasteignasali í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Stofan er með nýlegu parketi á gólfi og þaðan er útgengt á afgirta verönd.
Eldhúsið er með flísalögðu gólfi og kirsuberjainnréttingu.
Svefnherbergin tvö eru með parketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt með kirsuberjainnréttingu, hornbaðkari og opnanlegum glugga.
Flísalagt þvottahús er innan íbúðar og inn af því er rúmgóð geymsla.
Sameiginleg hjólageymsla er á jarðhæð. Snyrtilegt hús og umhverfi.
Frábær staðsetning, aðeins göngufæri í skóla og leikskóla. Mjög barnvænt hverfi.
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------