Lýsing
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN OG SVEINN EYLAND LGF. KYNNA:
Um er að ræða 80.6 fm 3ja herbergja íbúð á 1.hæð með útgengi á timburverönd og afgirtan suð-austur garð úr stofu.
Íbúðarrými er 74.2 fm og sérgeymsla 6.4 fm., snyrtileg sameign og sameiginleg rými í kjallara.
Stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu, íþróttar og útivistarsvæði.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Íbúð skiptist í:
Forstofu/hol, tvö svefnherbergi, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, sérgeymslu í kjallara.
Sameiginlegt þvottaherbergi, leikherbergi og hjóla/vagnageymsla í kjallara.
Nánari lýsing á eign:
Forstofa/hol með innbyggðum fataskápum.
Tvö svefnherbergi og eru fataskápar í herbergjum.
Stofa/borðstofa er eitt opið rými og er útgengi á afgirta timbur-verönd úr stofu.
Eldhús er með endurnýjaðri snyrtilegri innréttingu með efri og neðri skápum, flísaplötur á vegg milli skápa, tengi er fyrir uppþvottavél, borðkrókur.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað, sturtuklefi, flísar á veggjum og gólfi, tengi fyrir þvottavél á baðherbergi.
Rúmgóð sérgeymsla í kjallara. Sameiginlegt þvottaherbergi, hjóla/vagnageymsla í kjallara.
Gólfefni: Flísar, og nýlegt harð-parket á gólfum eignar.
Búið er að endurnýja innihurðar, baðherbergi, eldhús, gólfefni, tvo ofna og eins er ný timburverönd aftan við húseign.