Hraunbær 60, 110 Reykjavík (Árbær)
44.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
59 m2
44.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1967
Brunabótamat
26.750.000
Fasteignamat
37.550.000

LANDMARK Fasteignamiðlun og Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali kynna bjarta, 2ja herbergja íbúð á 2. hæð við Hraunbæ 60 í Reykjavík. Góðar svalir út frá stofu með útsýni. Vel staðsett eign með alla helstu þjónustu í næsta nágrenni. Búið er að endurnýja rafmagnstöflu og frárennslislagnir.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT SENT STRAX

Eignin er skráð 59,2 fm skv HMS og er geymsla þar af 4,4 fm.

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða [email protected]

Nánari lýsing eignar:
Forstofa
með fataskáp og parket á gólfi.
Stofa er með útgengt út á góðar svalir með útsýni, parket á gólfi.
Eldhús með nýlegum blöndunartækjum, flísar á milli skápa og borðkrókur, parket á gólfi. 
Svefnherbergi með fataskápum og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni og sturtuklefa.

Í kjallara er sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús ásamt þurrkherbergi og sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. Sameiginlegt leiksvæði á bak við húsið.

Viðhald í gegnum árin: Gólf í kjallara brotið upp og frárennslislagnir endurnýjaðar að mestu, steinateppi sett á gólf í sameign í kjallara, rafmagnstafla endurnýjuð, bílaplan holufyllt og þak málað.


Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða [email protected]
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.