Jörfagrund 54, 116 Reykjavík (Kjalarnes)
49.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
72 m2
49.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
27.100.000

LANDMARK kynnir:  Ný 3ja herbergja, 72,7 fm endaíbúð á fyrstu hæð með sérinngangi og 14 fm verönd á skemmtilegum stað á Kjalarnesi.  Tilbúin til afhendingar.

Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Stofan og eldhúsið er í opnu björtu rými með harðparketi á gólfi.  HTH innréttingar í eldhúsi og eldhústæki frá Ormsson og Heimilistækjum.
Svefnherbergin tvö eru með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt með innréttingum frá HTH
Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er í baðherbergi.
Verönd er út af stofu og sameiginleg lóð.
Sérgeymsla er innan íbúðar.

Húsið er timburhús, byggt úr forsmíðuðum einingum frá Profab í Eistlandi, einangrað inní veggjum og klætt að utan með litaðri báruklæðningu litur grár. Við innganga og veggi milli svala er vínrauður viður
Þakhalli og frágangur á þaki eru samkvæmt bygginarlýsingu aðalhönnuðar. 
Gluggar eru álklæddir timburgluggar, þrefalt gler er í gluggum með sólarvarnargleri.  Aðalinngangur er  að ofan við húsið (að norðanverðu) og þar eru sérinngangar í hverja íbúð. Geymslur og inntaksrými er fyrir miðju húsi á neðri hæðinni. Gert er ráð fyrir rafbílatengingum.

sjá nánar skilalýsingu byggingaverktaka.

Upplýsingar veita:
Freyja Rúnarsdóttir Lgf í síma 694-4112 eða [email protected]
Sigurður Samúelsson Lgf  í síma 896-2312 eða [email protected]
--------------------------------------------------------------


 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.