LANDMARK fasteignamiðlun Ingibjörg Agnes Jónsdóttir löggiltur fasteignasali, félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
Bjarta og fallega 4ra herb. endaíbúð með bílskúr á fjórðu hæð með tvennum svölum og fallegu útsýni. Húsið er á góðum stað miðsvæðis í Reykjavík þar sem sturtt í verslunarmiðstöð Kringlunnar og út á stofnæðar.
*** Allar upplýsingar veitir Ingibjörg Agnes Jónsdóttir löggiltur fasteignasali síma 897-6717 eða [email protected] ***FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT STRAX HÉR.Eignin er skráð samkv. fasteignamati og skiptist í íbúðarrými 106,4 fm.ásamt geymslu sem er skráð 6,8 fm og bólskúr 20,7 fm.
Birt flararmál samkv. þjóðskrá er 133,9 fm.
Væntanlegt fasteignamat 2024 kr. 71.750.000.-Eignin skiptist í forstofu/hol, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél, eldhús, borðstofu/stofu, stofu, þrjú svefnherbergi. Sér geymslu ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu og sameiginlegu þvottahúsi og þurrkherbergi í sameign.Nánari lýsing:Forstofa/hol er með innbygðu fathengi, mjög góðum nýlegum fataskáp og nýlegu parketi. Fram á stigapalli er helmingur af fataskáp sem tilheyrir eigninni.
Eldhús er með u-laga innréttingu með niðurfelldri uppþvottavél. Borðkrókur í eldhúsi og flísar á gólfi.
Stofan/ borðstafa er rúmgóð og björt með nýlegu parketi. Fallegt útsýni og útgengt út á svalir út stofu.
Hjónaherbergi er með gluggum á tvo vegu, innbyggðum eldri skápum og útgengi út á svalir. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I er með plastparketi.
Svefnherbergi ll er teppalagt.
Baðherbergi er flísalagt með snyrtilegri innréttingu, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Gluggi á baði.
Sér geymsla er á jarðhæð (6,4 fm.)
Bílskúr (20,7 fm) í bílskúrslengju með rafmagni, heitu og köldu vatni.
***Virkilega fín eign á frábærum stað miðsvæðis í Reykjavík. Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu **Húsgjöld á mánuði eru
kr: 28.483 .- Innifalið er almennur rekstur, húseigandatrygging,hiti, rafmagn í sameign, ræsting sameignar
Að sögn eiganda hafa eftirtaldar endurbætur verið framkvæmdar undanfarin ár:Skipt um teppi og málað á stigagangi 2022
Skipt um varmaskipti fyrir blokkina 2022
Hreinsað upp úr öllum niðurföllum við blokkina 2022
Malbik á bílaplani lagfært fyrir ca tveim árum
Nýleg þvottavél og þurrkari í sameiginlegu þvottahúsi
Skipt um brunn sunnan megin við húsið 2016/2017
Skipt um glugga í herbergjum og baði á austurhlið 2013. Skipt um gler í öllum gluggum nema litla glugga í eldhúsi. Svalahurðir endurnýjaðar.
Múrviðgerðir og málun vesturhlið og norðurgafli 2016 ásamt því að svalagólf voru fóðruð. Múrviðgerðir og málun á austurhlið og suðurgafli 2013.
Skipt um þak fyrir ca 15 árum og þak aftur yfirfarið 2018 og skipt um lausar lofttúður.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA