Aðalstræti 9, 101 Reykjavík (Miðbær)
Tilboð
Atvinnuhús/ Verslunarhúsnæði
0 herb.
0 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1970
Brunabótamat
109.850.000
Fasteignamat
93.500.000

Landmark fasteignamiðlun og Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali kynna: Vel staðsett og vandlega innréttað 134,0 m2 atvinnuhúsnæði í götuhæð að Aðalstræti 9 í Reykjavík. Veitingarekstur og bar er starfandi í húsnæðinu sem snýr út á hinn sögufræga Fógetagarð. Húsnæðið hefur verið innréttað með vönduðum hætti og samanstendur af hlýlegum flísum, panil og timbri, hlöðnum múrveggjum og fallegri lýsingu. Flísar eru á gólfi í veitingasal, stórt barborð og hillur með fallri innfelldri lýsingu. Stórir gólfsíðir gluggar. Innaf veitingasal eru þrjú salerni, flísalögð með upphengdu salerni og vaski, þarf af er eitt salernið fyrir fatlaða. Innaf veitingasal er geymsla og starfsmannaðstaða með salerni innaf. Sér geymsla er í kjallara. Yfirtaka á langtímasamningi. 

Um er að ræða samtals þrjá eignarhluta:
Fasteignanúmer 229-6392, matseining 01-0106. 
Fasteignanúmer 229-6393, matseining 01-0107. 
Fasteignanúmer 229-6394. matseining 01-0108. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali, s: 823 2600, [email protected]
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali s: 823 2800, [email protected]

--------------------------------------------------------------------------------------

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.