EIGNIN ER SELD OG ER Í FJÁRMÖGNUNARFERLI.
LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / [email protected]) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Virkilega fallegt og vel skipulagt endaraðhús innst í botnlanga við Laxatungu 102, 270 Mosfellsbæ. Húsið er byggt úr forsteyptum einingum sem einangraðar eru að utan. Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands var húsið byggt árið 2017 og er birt flatarmál eignarinnar 167,6 fm en þar af er íbúðarrýmið 139,2 fm og bílskúr 28,4 fm eða samtals 167,6 fm. Í bílskúrnum er geymsluloft með fullri lofthæð, 16 fm að stærð, yfir hluta af bílskúrnum og einnig yfir baðherberginu, 16 fm að stærð, og eru þessir fermetrar ekki skráðir í birta fermetrastærð. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr.
Gott skipulag, mikil lofthæð, innbyggð lýsing og gólfhiti í öllum rýmum hússins. Nýlegt harðparket frá árinu 2020. Fallegur timburpallur og skjólveggur úr lerki frá árinu 2020. Bílaplan með ísteyptum hitalögnum.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í rúmgóða
forstofu með fataskáp. Frá forstofu tekur við
stofa og borðstofa með útgangi út á pall og þaðan út í garð og á neðri pall.
Eldhús með fallegri hvítri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél, innbyggðum ís- og frystiskáp, blástursofni með kjöthitamæli, stóru spanhelluborði og viftu. Frá eldhúsi er unnt að ganga út í bakgarð. Parketlagður
gangur með fataskáp. Flísalagt
baðherbergi með hvítri innréttingu, Walk in sturta með innbyggðum blöndunartækjum og upphengt salerni. Yfir baðherberginu er um 16 fm geymsluloft. Innaf baðherberginu er
þvottahús með innréttingu fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Þrjú svefnherbergi og eru þau öll með fataskáp. Eigninni fylgir
28,4 fm bílskúr með mikilli lofthæð og er hann með millilofti og sjálfvirkum hurðaopnara. Samkvæmt teikningum er gert ráð fyrir geymslu innaf bílskúrnum.
Gólfefni: parket og flísar á gólfum.
VIRKILEGA FALLEGT OG VEL SKIPULAGT ENDARAÐHÚS Á RÓLEGUM OG EFTIRSÓTTUM STAÐ Í MOSFELLSBÆNUM.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma
690 3111 eða
[email protected]Meðmæli fyrri viðskiptavinaFylgdu mér á FacebookFylgdu mér á InstagramPantaðu
FRÍTT söluverðmat á
www.frittsoluverdmat.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA