Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. Sjá nánar fréttatilkynningu á Facebook-síðu okkar.
LANDMARK
Heimili er meira en staður – það er öryggi, tilfinning og
framtíð. Fasteignaviðskipti snúast ekki aðeins um að kaupa
eða selja, heldur að finna sinn stað í lífinu. Landmark leiðir fólk
heim – með trausti, fagmennsku og hlýju.
Fyrir kaupendur þýðir það að finna heimili sem passar lífinu
þeirra. Fyrir seljendur að fá verðmæti fyrir eign sem geymir
sögur og drauma. Við skiljum báðar hliðar og tryggjum að
ferðin verði farsæl fyrir alla.
Að leiða þig heim er loforð um samhygð og ábyrgð – að hvert
skref, hver ákvörðun og öll samskipti endurspegli það sem
skiptir mestu: fólkið, draumana og heimilin.
Landmark – Leiðir þig heim
Tilgangur:
Við finnum fólki sinn stað
Landmark stendur á milli seljenda og kaupenda, byggir
brú á milli fólks, drauma og verðmæta - og hjálpar öllum
að finna sinn stað.
Vegvísar:
Traust í hverju skrefi
Látum drauma rætast
Það er bara eitt Landmark
Fólkið skiptir öllu
LANDMARK fasteignamiðlun var stofnuð árið 2010. Allir fasteignasalar LANDMARKS eru aðilar að Félagi fasteignasala sem er mikilvægt hagsmunamál fyrir bæði kaupendur og seljendur. Fasteignasalar innan Félags fasteignasala starfa eftir ströngum siðareglum og viðhalda þekkingu sinni með því að sækja reglulega sí- og endurmenntun.
Fasteignasalar á LANDMARK starfa á grundvelli löggildingar samkvæmt lögum um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015, sbr. lög nr. 131/2015. Aðstoðarmenn fasteignasala starfa á grundvelli undanþáguákvæða sömu laga um starfsheimildir nemenda, sbr. 8. gr. a. og ákvæða II og IV til bráðabirgða. Við sölu eigna skipta fasteignasalar og aðstoðamenn fasteignasala með sér verkum í samræmi við ákvæði laga. Aðstoðamenn fasteignasala aðstoða við úttekt eigna og gerð söluyfirlits, aðstoða við gerð kauptilboðs, sýna fasteign og aðstoða við gerð fjárhagslegs uppgjörs. Aðstoðamaður fasteignasala starfar á ábyrgð löggilts fasteignasala.
LANDMARK starfar eftir peningaþvættisstefnu fasteignasölunnar skv. lögum nr. 140/2018 um Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og skv. Reglugerð nr. 745/2019 um áreiðanleikakönnun vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Rekstaraðili LANDMARKS er Landmark fasteignamiðlun ehf, kt. 700811-0500.
Netfang: [email protected]
Framkvæmdastjóri LANDMARKS er Monika Hjálmtýsdóttir