LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN 512.4900 KYNNIR:
Um er að ræða mjög fallega og vel skipulagða 3ja herbergja 82.2 fm íbúð á 10. hæð (efstu) í nýlegu lyftuhúsi á þessum vinsæla stað í Kórahverfinu í Kópavogi.
Aðeins eru fjórar íbúðir á hæðinni og er gengið inn í íbúð af rúmgóðum opnum svalagangi.
Með íbúð er sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu og er búið að leggja tengil fyrir rafmagnshleðslu við stæði í bílageymslu.
Stórglæsilegt útsýni af stórum og skjólgóðum svölum sem að búið er að loka með svala-lokunum.
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT STRAX HÉR.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s.6900820 eða [email protected]
Íbúð skiptist í:
Forstofu/hol, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, sér geymslu í kjallara og stæði í lokaðri bílgeymslu.
Búið er að loka af 16 fm svölum með svalalokunum en svalir eru ekki inni heildarfermetratölu íbúðar.
Nánari lýsing eignar:Gengið er inní íbúð af opnum svalagangi og komið í forstofu með fataskáp og eins er fastur skóskápur á vegg.
Stofa/borðstofa er opið og bjart rými, sjónvarpsskenkur á vegg með góðu skápaplássi, útgengi á aflokaðar 16 fm suð-austur svalir úr stofu með stórfenglegu útsýni, vandaðar flísar á svalagólfi.
Eldhús er opið inní borðstofu, snyrtileg eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, gert er ráð fyrir uppþvottavél og einföldum ísskáp í innréttingu.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum fataskáp eins er gott barnaherbergi með fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á veggjum og gólfi, hvít innrétting undir vask með skápum og eins er veggskápur við hlið innréttingar, Walki-in sturta með glerskilrúmi, vegghengt salerni, handklæðaofn.
Þvottaherbergi er innan íbúðar, vinnuborð og skolvaskur, gluggi á þvottaherbergi. Sérgeymsla íbúðar í kjallara með mikilli lofthæð ásamt hjóla & vagnageymslu.Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu sem er staðsett stutt frá inngangi í stigahús, búið að leggja tengil fyrir rafhleðslu rafmagnsbíla við bílastæði í bílageymslu.Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum íbúðar.
Falleg og vel staðsett íbúð á eftirsóttum stað, stutt í skóla, leikskóla, verslun, þjónustu og útivistarsvæði.-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða [email protected] Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA