Ásholt 2, 105 Reykjavík (Austurbær)
113.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
109 m2
113.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1990
Brunabótamat
73.260.000
Fasteignamat
103.850.000
Opið hús: 18. júní 2026 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Ásholt 2, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 10 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 18. júní 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

LANDMARK kynnir:  Einstök íbúð á 10. og efstu hæð við Ásholt 2 í Reykjavík.  Eignin er 3ja herbergja, 109,8 fm og er eina íbúðin á hæðinni - 2 bílastæði í bílageymslu fylgja, sem eru hlið við hlið. Húsvarsla er í húsinu. Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur, þaðan sem aðeins göngufæri er í lifandi mannlíf miðbæjarins og allrar helstu þjónustu.

Úr lyftunni er komið inn í bjartan og teppalagðan gang með vestursvölum.  Einstakt útsýni yfir vesturhluta Reykjavíkur.

Forstofa og hol er flísalagt með fataskáp.
Eldhúsið er með ljósri viðarinnréttingu, flísum á gólfi og glæsilegu útsýni til suðvesturs.
Stofan og borðstofan eru í opnu og björtu rými með glæsilegu útsýni og útgengi út á yfirbyggðar suður / suðvestur svalir.
Baðherbergið var endurnýjað 2023-2024 og er flísalagt með fallegri innréttingu með steinvaski og borði, steyptri sturtu með glervegg, handklæðaofni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergin eru tvö með flísum á gólfi og fataskáp í hjónaherbergi.

Í sameign á jarðhæð er sérgeymsla íbúðar (6,9 fm) en hún er inn af öðru bílastæðinu í bílageymslu, mjög gott aðgengi.  Hleðslustöð fylgir.  Þvottaaðstaða er í bílageymslu.
Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er í sameign á jarðhæð og önnur sameiginleg rými eins og hjólageymsla.

Sameiginlegur afgritur garður er við húsið með leiktækjum fyrir krakka.  Árið 2025 var þak endurbætt og nýlega var skipt um gler í allri íbúðinni.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
------------------------------------------------------------------------------------


 

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.