Sóleyjarimi 5, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
82.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
99 m2
82.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2005
Brunabótamat
54.700.000
Fasteignamat
76.700.000

LANDMARK fasteignamiðlun og Ingibjörg Agnes Jónsdóttir, lögg. fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
Íbúð fyrir 50 ára og eldri. Virkilega falleg og rúmgóð 3ja herb.íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi við Sóleyjarrima í Reykjavík. Yfirbyggðar svalir, stæði í bílakjallara. Eina íbúðin á sér stigagangi sem gengið er inn í af svölum. Enginn umgangur fram hjá herbergjum. Fallegt útsýni er úr íbúðinni bæði vestur yfir Faxaflóann og af svölum yfir borgina.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu í opnu rými , tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar en henni fylgir einnig stæði í bílakjallara, sér geymsla á jarðhæð ásamt hlutdeild í sameign.

Birt stærð samkv. HMS 99,4 m² og skiptist í íbúðarrými 92,3fm. ásamt geymslu sem er 7,1 fm. 

Eignin er laus við kaupsamning.

Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Ingibjörg lögg.fasteignasali s. 897-6717 eða [email protected]


SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT 

✅ Björt og mjög rúmgóð íbúð.
✅ Fallegt útsýni til fjalla og yfir Faxaflóann.
✅ Sólríkar yfirbyggðar svalir.
✅ Stæði í bílakjallara.
✅ Stutt í þjónustu í Spönginni og fallegar gönguleiðir.

Nánari lýsing:
Forstofa: Er flísalögð og hægt að loka inn í íbúðina.
Eldhús: Er í opnu rými með stofu/borðstofu. L-laga innrétting, flísalagt á milli skápa, gott vinnupláss og tengi fyrir uppþvottavél. 
Stofa/borðstofa: Er parketlögð, björt og rúmgóð, útgengt á yfirbyggðar svalir með tréflísum á svalagólfi. Fallegt útsýni.
Herbergi 1: Er rúmgott, parketlagt með góðum fataskápum.
Herbergi 2: Er parketlagt með fataskáp. 
Baðherbergi: Er rúmgott, flísalagt, sturtuklefi og góð innrétting.
Þvottahús:  Er flísalagt með hillum.
Geymsla: Er á jarðhæð (7,1 fm smkv. HMS).  
Bílastæði: Sér stæði í bílakjallara. Stæði merkt (B-51)

Virkilega björt og fín íbúð í vönduðu lyftuhúsi, snyrtileg sameign og stæði í óupphituðum bílakjallara. Stutt er í þjónustu í Spönginni, eldriborgara starf í Borgum. Fallegar gönguleiðir í nágrenninu meðfram sjávarsíðunni, nálægð við golfvöll, sundlaug.  

Húsgjöld eignar eru samtals ca. kr.31.679.- á mánuði en þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélaga, framkvæmdarsjóður,rekstur á bílakjallara, allur hiti, rafmagn í sameign.
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.