Norðurbakki 1B, 220 Hafnarfjörður
91.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
102 m2
91.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2008
Brunabótamat
74.390.000
Fasteignamat
82.900.000

LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN & INGIBJÖRG LGF. OG FÉLAGSMAÐUR Í FÉLAGI FASTEIGNASALA  KYNNA:
Í einkasölu 3ja. herb. íbúð á 2. hæð við Norðurbakka í hjarta Hafnarfjarðar. Húsið er klætt að utan með flísum, gluggar álklæddir og lóðin fallega frágengin. Stæði í bílageymslu og lyfta í húsinu. Göngufæri við miðbæ Hafnarfjarðar með iðandi mannlífi, bakarí og kaffihús á jarðhæðinni.

Birt stærð samkv. HMS 95,2 fm íbúð og 7,1 fm. geymslu. Birt stærð séreignar er 102,3 fm.

Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Ingibjörg lögg.fasteignasali s. 897-6717 eða [email protected]

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

✅ Björt og mjög rúmgóð íbúð.
✅ Fallegt útsýni út á sjóinn.
✅ Tvennar svalir, aðrar yfirbyggðar.
✅ Stæði í bílakjallara.
✅ Stutt í helstu þjónustu.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar, sér geymsla og stæði í lokuðum bílakjallara. 

Forstofa: Parket á gólfi og rúmgóðir fataskápar. 
Hjónaherbergi: Parketlagt með góðum fataskápum og útgengi út á svalir með útsýni milli blokka út yfir á sjóinn. 
Barnaherbergi : Parketlagt með fataskáp. Rennihurð er á herberginu en möguleiki er að opna þar aftur og tengja við stofuna.  
Stofa/borðstofa: Er parketlögð með útgengi út á rúmgóðar yfirbyggðar svalir sem nýtast mjög vel sem framlenging af stofu. 
Eldhús: U-laga eikar innrétting, flísar fyrir ofan helluborð. Tengi fyrir uppþvottavél, gott vinnupláss. Parket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, steyptur sturtubotn með glervegg, góð innrétting.
Þvottahús: Inn af baðherbergi er þvottahús með innréttingu. 
Geymsla: Sér geymsla er á jarðhæð (7,1 fm.) ásamt hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. 
Bílastæði: í bílakjallara merkt B35 (204)

Virkilega björt og fín íbúð í vönduðu lyftuhúsi, snyrtileg sameign og stæði í bílakjallara. Stutt í helstu þjónustu og með miðbæ Hafnarfjarðar og Fjörðinn handan við götuna.  Fallegar gönguleiðir í nágrenninu meðfram sjávarsíðunni.

Húsgjöld eignar eru samtals  kr.39.270.- á mánuði en þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélaga, framkvæmdarsjóður,rekstur á bílakjallara, allur hiti, rafmagn í sameign.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Ingibjörg Agnes Jónsdóttir lögg.fasteignasali gsm: 897-6717  eða i[email protected]





 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.