LANDMARK fasteignamiðlun og Ingibjörg Agnes Jónsdóttir, lögg. fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:Grundargargötu 54, fallegt og vel skipulagt einbýlishús á góðum stað í Grundarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og fallega náttúru. Húsið býður upp á björt og rúmgóð sameiginleg rými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda opið og notalegt alrými sem hentar einstaklega vel til daglegs lífs og samveru.
Í húsinu eru fjögu rúmgóð svefnherbergi með fataskápum, gott baðherbergi með baðkari og þvottahús með útgengi út í garð. Varmadæla er í alrými stuðlar að hagkvæmri og þægilegri upphitun og ofnar í svefnherbergjum.
Eigninni fylgir bílskúr með rafmagni og stór og gróin lóð með pöllum sem býður upp á ýmsa möguleika fyrir fjölskylduna.
Birt stærð samkv.
HMS 185,1 m², íbúðarrými 141,8 m² og bílskúr 43,3 m².
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT eða nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Ingibjörg Agnes í síma 897-6717 eða
[email protected] Nánari lýsing:Forstofa: Flísalagt gólf með fatahengi.
Hol: Parketlagt.
Eldhús, stofa og borðstofa: Bjart og opið alrými með harðparketi. Eldhúsið er með spanhelluborði, stór eyja og gott vinnurými.
Svefnherbergi: Parketlögð og með fataskápum í öllum herbergjum.
Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi og fataskápum upp í loft.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og flísar að hluta á veggjum. Baðkar með sturtuhaus.
Þvottahús: Flísalagt með útgengi út í garð, útiþvottasnúrur og geymsluloft.
Bílskúr: Rafmagn er til staðar en ekki hiti.
Kynding: Rafmagn. Varmadæla er í eldhúsi, stofu og borðstofu en ofnar í svefnherbergjum.
Annað: Skólplagnir utanhúss hafa verið endurnýjaðar að hluta.
Hér er um að ræða notarlegt heimili miðsvæðis í Grundarfirði sem hentar jafnt fjölskyldum sem þeim sem vilja njóta lífsins í fallegu umhverfi við rætur Kirkjufells.
Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat